Upplýsingar um seljanda
Calibersport ehf, kt: 660721-0960
Almennt
Kaupandi verður að vera orðinn fjárráða til þess að eiga viðskipti á vefsvæði Hardfit, hardfit.is Eftirfarandi skilmálar gilda um viðskipti seljanda og kaupanda svo og um notkun á netversluninni hardfit.is. Skilmálarnir skilgreina réttindi og skyldur seljanda annars vegar og kaupanda hins vegar. Þegar sérstökum ákvæðum þessara skilmála sleppir gilda um viðskiptin lög um neytendakaup nr. 48/2003 og eftir atvikum lög um húsgöngu- og fjarsölusamninga nr. 46/2000 og lög um þjónustukaup nr. 42/2000.
Allar upplýsingar á vefnum eru með fyrirvara um prentvillur, verðbreytingar og birgðastöðu.
Verð
Öll verð eru gefin upp í íslenskum krónum með virðisaukaskatti ýmist 11% eða 24%. Vinsamlegast athugaðu að verð í netverslun geta breyst án fyrirvara vegna rangra verðupplýsinga eða prentvilla.
Skilafrestur og endurgreiðsluréttur
Kaupandi getur skilað vöru svo lengi sem varan er ennþá í sölu, að því tilskildu að hann hafi ekki notað vöruna, henni sé skilað í góðu lagi í upprunalegum umbúðum og að greiðslukvittun fylgi með í næsta útibúi. Ef þú kemst ekki til okkar þá getur þú sent okkur vöruna. Endursending vöru er á ábyrgð kaupanda en við bjóðumst til þess að greiða sendingarkostnaðinn. Varan er endurgreidd að fullu ef henni er skilað innan 14 daga og ofangreind skilyrði eru uppfyllt. Fresturinn byrjar að líða þegar varan er afhent skráðum viðtakanda. Endursending vöru er á ábyrgð kaupanda en við greiðum sendingarkostnaðinn.
Afhendingartími
Við erum tvo til fjóra virka daga með okkar helstu vöruflokka.
Endursending á vörum sendist:
caliber sport ehf - hardfit- kt: 660721-0960 -
Gylfaflöt 17, 112, Reykjavík.
Ábyrgðarskilmálar
Ábyrgð seljanda er í samræmi við það sem kveðið er á um í lögum um neytendakaup. Ábyrgð á galla á vöru er 2 ár frá því að kaupandi fékk vöru afhenta. Ef hins vegar um er að ræða sölu á vöru til fyrirtækis er ábyrgð á galla 1 ár.
Kom fram galli sem rekja má til framleiðslugalla á þessu tímabili skiptum við henni út fyrir nýja eða endurgreiðum hana. Athugið að ábyrgðin nær ekki til tjóns sem hlýst af slysi, vanrækslu, venjulegu sliti eða eðlilegu litatapi sem verður við notkun og þegar á líður. Vörunni skal skilað í verslun að Gylfaflöt 17, 112, Reykjavík
Sendingarmöguleikar og kostnaður
Heimsendingar eru í boði Höfuðborgarsvæðinu og á næsta afgreiðslustað Flytjanda, Landflutninga eða á næsta pósthús hjá Póstinum á höfuðborgarsvæðinu. Kaupandi ákveður hvaða flutningsaðili er notaður en það fer eftir umfangi sendingar en léttari pakkar fara þó oftast með Póstinum. Í einhverjum tilfellum getur vara verið undanþegin frírri heimsendingu innan höfuðborgarsvæðis, t.d. vegna verðs, rýmingarsölu oþh, en það mun þá verða skýrt tekið fram. Pantanir eru í flestum tilfellum afgreiddar frá okkur innan sólarhrings en í sumum tilvikum geta liðið tvo til fjóra virka dagar að fá vöruna í hendur eftir að pöntun er gerð en pantanir eru ekki sendar út á laugardögum og sunnudögum. Pantanir sendar út fyrir höfuðborgarsvæðið eru greiddar af viðtakanda, nema annað sé umsamið.
Öll verð í vefverslun eru með inniföldum 24% vsk en sendingakostnaður bætist síðan við áður en greiðsla fer fram. Við sendum allar
vörur beint heim að dyrum ef möguleikinn er fyrir hendi.
Sendingakostnaður er skv verðskrá sendanda.
Öruggar greiðslur
VIið notumst við Valitor.
Allar kortagreiðslur fara í gegnum örugga greiðslusíðu Valitors og hægt er að greiða með öllum debit- og kreditkortum frá Visa og Mastercard.(kortalaus viðskipti), Pei (kortalaus viðskipti) ásamt greiðsludreifingu í allt að 48 mánuði.
Trúnaður
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem að hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila. Seljandi meðhöndlar persónuupplýsingar kaupanda vegna notkunar á vefsvæðinu Sportvorur.is í samræmi við gildandi lög og reglur um meðferð persónulegra upplýsinga á hverjum tíma.
Varnarþing
Skilmálar þessi eru í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir íslenskum dómstóli.
Annað
Við heitum fullum trúnaði við viðskiptavini okkar og afhendum ekki upplýsingar til þriðja aðila.
Hafa samband
Sendið okkur línu á hardfit@hardfit.is ef þið hafið eitthverjar fyrirspurnir og við svörum þér eins fljótt og auðið er.
Vörur á lager
Við eigum megnið af okkar vörum á lager en við bjóðum uppá sérpantanir til að koma til móts við þarfir viðskiptavinarins.